Um Brumm Brumm

Prentsmiðja á hjólum. Íslenskur hversdagur í lit.

Brumm Brumm er myndlistarverkefni og prentsmiðja á hjólum, rekin af Atla og Mai. Við teiknum myndirnar okkar í sameiningu og handprentum myndir og vörur með silkiprenttækni. Innblásturinn sækjum við í íslenskan hversdag — kunnuglegar umbúðir, mat, staði og smáatriði sem vekja minningar.

Prentsmiðjan okkar er í gömlum húsbíl sem við höfum breytt í vinnustofu og lítið gallerí. Þar verða myndirnar til, einn litur í einu.

Prentað í höndunum

Í silkiprenti er hver litur prentaður sérstaklega í gegnum stensil á þéttum vef. Aðferðin gefur okkur færi á að vinna með sterka liti, áferð og samspil litaflata.

Smávægilegur munur getur verið á litum og samfalli lita milli eintaka — það er hluti af eðli silkiprentunar.

Við á bak við Brumm Brumm

Atli er myndlistarmaður og silkiprentari. Mai er menntuð í fatahönnun og vinnur meðal annars með textíl, prentun og litun. Í Brumm Brumm mætast áhugi okkar á myndlist, handverki og því að skapa með eigin höndum.


About Brumm Brumm

A print studio on wheels. Everyday Iceland in colour.

Brumm Brumm is an art project and mobile print studio run by Atli and Mai. We draw our images together and screen print our artwork and products by hand. Our inspiration comes from everyday life in Iceland — familiar packaging, food, places and small details that bring back memories.

Our print studio is housed in an old camper van that we have converted into a workspace and small gallery. This is where our prints take shape, one colour at a time.

Printed by hand

In screen printing, each colour is printed separately through a stencil on a fine mesh screen. The process allows us to explore bold colours, texture and the interplay of layers.

Slight variations in colour and registration may occur between prints — part of the character of screen printing.

The people behind Brumm Brumm

Atli is an artist and screen printer. Mai has a degree in fashion design and works with textiles, printing and dyeing. Brumm Brumm brings together our shared interest in art, craft and making things by hand.